|
|
18.09.2007 22:07:00 / elly
Já ég skal bara viðurkenna það strax. En nú á ég 3 bíla og þeir eru jafnvel allir til sölu ef einhvern vantar bíl. ÉG var að taka til í bílskúrnum hjá mér og fann þar 7 manna Kia Carnival 2000 árg, þarfnast lagfæringar og aðhlynningar fæst á 170 þúsund. Voða góður bíll, ásett verð á bíl í lagi er c.a 600 þúsund en ég nenni ekki að laga hann. Svo var þarna VW Golf, árg 99, svaka sætur með topplúgu og alles. Fæst á yfirtöku á láni sem er c.a 300 þúsund, 22 þús á mánuði. Í einu horninu var svo Kia Picanto, lítið notaður 2005 árgerð, krúttlega blár á litinn, eyðir 4.9 l á hundraðið. Hann er líka falur gegn yfirtöku á láni sem er eitthvað hærra, í kringum 800 þús. Ef þig hafið áhuga, þá bara hafa samband. Já þetta er ekki af því að ég hafi læknast af fíkninni og ætla að hjóla á enda veraldar. Nei ÉG ÆTLA AÐ FÁ MÉR JEPPA, og ég kem honum ekki fyrir í skúrnum með alla þessa bíla þar. Svo vantar okkur tilfinnanlega meira pláss þarna inni. Ég gæti stofnað fyrstu bílasölu Hvanneyrar, hmm hljómar vel. Verst að bílasalar eru yfirleitt að selja bíla fyrir aðra. En já mínir 3 eru kannski byrjunin. Jæja nóg bull í bili. Heyrumst síðar Kveðja Ellý Carsaleswoman.
»
12.09.2007 18:44:07 / elly
Jamm ég blogga núna af einskærri skyldurækni, farin að fá símhringingar þess efnis að ég eigi að fara að blogga. En ég lærði eitt í dag, "ekki halda að nokkur dagur sé svo slæmur að næsti geti ekki orðið verri" Dagurinn í gær var vægast sagt hræðilegur. Til að fara yfir það í grófum dráttum þá skeit kötturinn á herbergisgólfið (Á fötin mín), ég skellti fötunum í þvott og 20 mínútum síðar komst ég að því að þvottavélin lak semsagt öllu vatninu á gólfið. (þarna var klukkan 7.20) Margrét Rós sullaði herbalife sheik á gólfið stuttu síðar og það út um allt. Ég ætlaði að hjóla í vinnuna en nei þá var ekkert loft í dekkjunum á hjólinu. Ákvað því að fara á bílnum þar sem allt stefndi í að ég yrði töluvert seinni en vanalega, þá vildi bíllinn ekki fara í gang nema með hjálp svo ég varð að grípa til starttækisins og aðstoða hann við að gangsetjast. (Klukkan orðin 8 og ég sein að öllu) Svo fór ég með Margréti á leikskólann og Guðjón í skólann og trítla í vinnuna (ef ég legg bílnum á milli leikskólans og grunnskólans og labba í vinnuna og Guðjón í skólann mitt á milli þá sko sparast nokkrar mínútur, útpælt í sveitarfélagi sem það tekur ekki nema 5 mínútur að labba enda á milli) Ok ég mæti í vinnuna mjög fegin yfir því að nú hljóti allt að lagast. En þegar hafragrauturinn var farinn að detta úr höndunum á mér, bláberjasúpan að fljúga úr skálum, kaffi að sullast um allt og 8 börn með niðurgang var ég nokkuð viss um að dagurinn í heild sinni var HEILHVEITI. Og ég fór heim með því hugarfari og fullyrti að næsti dagur yrði fullkominn, og ég ætli að vinna 10 milljónir í Víkingalottóinu. En eitt er víst, dagurinn í dag er langt frá því að vera fullkominn, og hlutirnir sem gerðust í gær bara smámunir, það voru þó bara venjulegir hlutir á hraðferð á vitlausum stöðum. Maður á ekki að láta svona lagað pirra sig. Allt þetta reddaðist, jú ég þurfti að þrífa helling meira en mig langaði til, og já ég var seinni en vanalega. Skítt með það, njótum tímans sem við höfum, þökkum fyrir fólkið í kringum okkur því allt þetta bæði hrakföllin og þetta skemmtilega gerir okkur að því sem við erum, og er það sem við höfum. Takk fyrir mig. Takk fyrir ykkur. Takk fyrir allt. Kveðja Ellý djúpt hugsandi í dag. p.s ég er ekki hætt við að vinna 10 milljónir í lottóinu samt.
»
31.07.2007 03:13:45 / elly
Jæja þá er þessarri ævintýraferð lokið. Hún var í alla staði
frábær.
Ég kynntist helling af nýju fólki, verslaði annann helling,
labbaði líka helling. Lærði að galdra og að drekka bjór 
Og þetta allt áður en að ráðstefnan sjálf hófst. Merkilegur
árangur finnst mér.
Ráðstefnan var svo frábær, vorum þarna 18.000 manns saman komin
í Kölnarena og dúndrandi stuð. Lærðum mikið og höfðum gaman. Við
íslendingarnir vorum á bilinu 180- 200.
Hef ekki orku í lengra blogg í bili.
Hafið það gott, kveðja
Ellý bjóráhugakona 
»
24.07.2007 09:49:51 / elly
Góðan daginn!
Nú er ég í góðu yfirlæti hjá móðursystrum mínum í
Reykjavík. Er sko ekki í flugvélinni af því að flugi mínu var
seinkað um nokkrar klukkustundir eða frá kl 7.00 til 16.40.
Nú bara sit ég og bíð og safna tilhlökkun og stressi.
Frekar skrýtið að vera án barnanna ég verð að viðurkenna það, en
við höfum aldrei verið aðskilin svona lengi, við Guðjón aldrei
lengur en 4 daga og við Margrét ekki lengur en c.a sólarhring

En þetta reddast, ég mun sko skemmta mér vel, þannig líður
tíminn hraðar.
Nú segi ég bara bless í bili og heyrumst síðar, aldrei að vita
nema að ég bloggi í ferðinni (þ.er ef ég kemst í tölvu )annars
kemur ferðasagan þegar ég kem heim, eftir c.a viku.
Auf widersehen!!!
Ellý
»
17.07.2007 22:04:07 / elly
ég er að verða með lélegri bloggurum á landinu, þ.e.a.s ef maður
getur talist bloggari þegar maður bloggar sjaldnar en aldrei.

En já þannir er svo komið að ég fer til Köln eftir c.a 7 daga,
þann 24.júlí og mun dvelja þar í 6 daga. Er þetta spennandi mjög og
mikill fiðringur farinn um mig. Ég hef fengið í hendur í gegnum
tölvuna mína (með aðstoð prentarans) farseðilinn, eða kannski bara
bókunarnúmerið og er búin að prenta út miðann á þjálfunina, nafnið
á hótelinu ásamt heimilisfangi svo ég geti mögulega ratað. Einnig
hef ég fundið til vegabréf mitt og enn einnig örfáar flíkur sem
notast skulu í ferð þessarri.
Semsagt töluvert langt komin með undirbúning. Og spennan bara
magnast.
Á fimmtudagskvöldið er ég að fara að aðstoða við snyrtivöru
kynningu, svo er eitt og annað að gerast svona til að stytta
biðina, t.d magnast stressið í maganum ofl sniðugt.
Ég er búin að redda mér fari á flugvöllinn (eiginmaðurinn ætlar
að vera svo sætur í sér að skutla konunni) en að komast heim er
öllu verra ( eiginmaðurinn vill ekki leysa mig úr tollinum) hehe
nei grín, hann er að vinna þá.
En það reddast, að komast heim frá leifstöð hefur einu sinni
reynst flókið og þá átti ég bíl á bílastæðinu þar fyrir utan, ég sé
ekki að það skipti nokkru máli fyrir mig. Kemst alveg jafnt heim
með engan bíl eins og með bíl en enga lykla.
En þetta er orðið meira en nógu langt blogg í bili, sennilega
mun ég blogga aftur áður en ég fer út en það er þó ekki eitthvað
sem hægt er að treysta á 
Bestu kveðjur í bili
Ellý sem kann eina setningu í þýsku, Ich bin einen
kugleschreiber (er ekki viss um að hún nýtist í ferðinni, nema þá
helst að mig vanti að komast inn á geðdeild þar í landi)
»
10.07.2007 16:41:54 / elly
... til tilbreytingar 
Held samt að ég hafi ekkert merkilegt að segja. Jú nú eru bara 2
vikur þar til ég fer til Þýskalands, eða sennilega verð ég komin
þangað á þessum tíma eftir 2 vikur farin að sötra bjór og spá í
hvað ég eigi að versla mér daginn eftir. Ég nefninlega lenti í því
að þurfa að taka flug 24.júlí í staðinn fyrir 26.júlí, agalega
sorglegt hehe eða ekki. Verð semsagt 3 daga að dúllast í Köln,
barnlaus og kalllaus. Þá verður nú verslað og gert eitthvað til
gamans.
Ekki það að mig hlakki til. HAHAHA. BARA GET EKKI BEÐIÐ!!!
Annað fréttnæmt, jú ég er 1kg léttari og 1cm minni (af þessum 4
stöðum sem ég mæli mig) sem þýðir að í heildina er ég slatti kg
léttari og heilum 69 cm minni, á þverveginn. Myndi varla sjást ef
það væri langsum. Ég er nokkuð sátt við það allt saman. Því minna
sem til er af mér hlýtur að þýða minna vesen.
Í fyrra þegar "kviknaði í mér" úti í London, eða réttara sagt
þegar ég skaðbrann, þá hefur eitt merkilegt gerst. Mér er fært að
taka lit. Ég fór í sund í gær og fékk brúna slikju á búkinn, sko
þar sem sundbolurinn var ekki. Það hefur bara ekki gerst fyrr. Sem
náttúrulega þýðir það að ég er að fara í sund á eftir. Verð sko
brún og sæt áður en ég veit af.
Jæja nenni ekki meiru í bili, geðveikislega gott veður 20 stiga
hiti segir á www.skessuhorn.is svo það er
um að gera að fara að brúna sig. hehe.
Heyrumst, mun fljótlega koma með to do lista fyrir ferðina.
Kveðja
Ellý supervisor.
»
28.06.2007 21:01:27 / elly
Jæja, þá getur maður slakað aðeins á. Stess undanfarinna vikna
aflétt að mestu.
Já ég er semsagt að fara til Köln 26. júlí á þrusu Herbalife
ráðstefnu og skemmtun. Hlakka svakalega mikið til. Eiríkur er að
vinna þannig að hann kemst ekki með í þetta skiptið en pottþétt
næst. Þetta verður þvílíkt fjör, hef ekki trú á öðru.
Annað fréttnæmt er eitthvað lítið...
...jú sumarfríið byrjar á morgun, það verður svakalega notalegt.
Vonandi fer ég bara til mömmu um helgina í grill og afslappelsi,
skemmtilegheit og dekur eins og alltaf.
Jamm ætla að finna til allt það skemmtilega sem ég ætla að koma
með í vinnuna á morgun, hef ákveðið að skapa party stemmingu með
blöðrum og alles allann daginn   sérstaklega í hádeginu,
neiiii grín.
Bestu kveðjur í bili
Ellý Kölnarfari
»
20.06.2007 20:08:54 / elly
... væri bara sniðugt að blogga.
Nú eru bara örfáir dagar í sumarfrí, síðasti vinnudagurinn er
föstudagurinn 29.júní, þó börnin séu yndisleg og
samstarfsmanneskjan ekki síðri þá er voða næs að vera að fara í
sumarfrí. Næstu dagar verða reyndar rólegir, örfá börn fyrir hádegi
og enn færri eftir hádegi. Enn eitt barnið hætti í dag og færði
okkur geggjaða gjöf, kaffibolla og súkkulaði það kætir kaffi og
súkkulaðikellingar eins og okkur mikið!!!
Mikið veit ég samt ekki hvað ég á að segja, allur minn kraftur
þessa dagana fer í að komast til Köln í lok Júlí, það stefnir þó í
að það takist svo það verður bara fjör. Kallinn ætlar með mér og
allt hvað eina   (hræðilega oft það í þessarri setningu)
Jamm og já. Það er nefninlega það sko. Djöfull er ég tóm í
dag og samt heillangt síðan ég bloggaði síðast. Hefur virkilega
ekkert gerst í mínu lífi. Ja hérna. Jæja ég get alla vega bloggað í
byrjun ágúst, ferðasöguna til Þýskalands   
Kveðja
Ellý
»
01.06.2007 21:33:15 / elly
Já gáfuleg fyrirsögn, hafði ekki hugmyndarflug í meira 
Þessa dagana er nóg að gera í sveitinni sko. Í dag var síðasti
skóladagur í GBF okkur til mikillar ánægju, nú eru bara
skólaslitin framundan þann 6.júní kl 14, semsagt ekki víst að ég
komist á þau. Fótboltaæfingarnar byrjaðar hjá gaurnum, en hann
er á þriðjudögum og fimmtudögum seinnipartinn á vísum stað uppi
á fótboltavelli, það eru sennilega einu stundirnar þar sem hægt
er að ganga að Guðjóni Helga vísum.
Margrét Rós er alltaf í leikskólanum núna í sumar flyst hún
tímabundið um deild og verður því á Álfheimum í stað Hulduheima, og
líkar bara vel held ég. Kemur samt fullkomlega í ljós á mánudaginn
Hún kann helling að tala skvísan, þrátt fyrir að ganga núorðið
undir nafninu mállausa barnið. Já það kom til út af því að hún var
sett í orðaforðakönnun, leikskólinn fór að hafa áhyggjur af henni
þar sem barnið bara sagði ekki aukatekið orð, mikið öfunda ég þær,
krakkinn talar stanslaust hérna heima.
Vinnan mín verður rólegri með hverri vikunni held ég bara, núna
eru bara 7/6 börn í stað 8/7 og eftir miðjan júní verða þau 6/5 það
verður rólegt, hehe. Svo til að vega upp á móti þessum rólegheitum
fórum við Svandís (herbalifevinkona mín) af stað með Heilsuklúbb á
Akranesi, hann verður alla miðvikudaga og einn laugardag í júní,
það er spennandi verkefni.
Eiríkur vinnur og vinnur, fer reyndar í 3ja vikna frí eftir
morgun daginn. Það verður gaman, þó ég verði reyndar að vinna, en
við hittumst þó alla vega meira en við höfum gert undanfarið.
Meira???? Jú það er til 54 cm minna af mér en á síðasta ári, og
það ekki á langveginn (enda ég ekki löng, yrði sennilega að holu ef
ég myndi minnka svo mikið í þá áttina.) mér finnst það svo helv...
gaman að ég varð að klína því með.
Svo er það ein spurning að lokum:
Myndi einhver heilvita manneskja skrifa "peysa" svona =
peisa????
Kveðja í bilos
Ellý
Herbalife
»
28.05.2007 19:26:52 / elly
Já ég ætla helst að losa mig við slatta af skipulagsáráttu
minni, henni fylgir einn galli, það gerist ekkert af því sem
skipulagt er hehehe.
Annars langaði mig bara að blogga, leiðinlegt að horfa alltaf á
sama bloggið, ég hef ekkert merkilegt að segja.
Það er kynning hjá mér á Sunnudaginn allir velkomnir, vítamin,
fæðubótarefni, orkudrykkir og snyrtivörur, stuð og glens ofl í
boði.
Kannski kemur bloggöndin yfir mig fljótt þá mun ég skella meiru
hingað inn.
Kveðja
Ellý

»
22.05.2007 21:51:17 / elly
Halló gott fólk.
Já nú er hellingur að gera alls staðar, merkilegt hvað allt
verður skemmtilegt og spennandi þá. Reddaði júní skemmitlega, sá
fram á að það verður ansi rólegt í dagmömmuvinnunni í júní og þá
ákvað ég ásamt vinkonu minni að starta heilsuklúbb á Akranesi í
júní. Það er öllum velkomið að vera með bara hafa samband við mig
og fá meiri upplýsingar.
3. júní kemur hingað frábær kona með heilsukynningu hérna
hjá mér, svaka spennt fyrir því.
Já svo það verður bara vonandi fjör í júní.
Júlí er svo sumarfrís mánuðurinn minn, þá ætla ég að
Herbalifeast helling, fara helst með fyrirtækinu til Köln líka á
hörku ráðstefnu. Svo ætla ég líka að slappa af, njóta þess að
hugsa bara um 2 börn, hehe. Já ég ætla svo sannarlega að njóta þess
að dekra börnin mín í sumar eftir erfiðann vetur   ohh hvað ég
hlakka til.
Ætla pottþétt að ferðast, bara veit ekki hvert 
Og hellingur í viðbót sem ég á eftir að upphugsa...
...hvað ætlið þið að gera gott fólk ??? segið mér endilega.
Kveðja
Ellý
»
20.05.2007 22:59:31 / elly
...Gaman að sjá hvað maður hefur gert og hvað ekki, spurning
hvort maður þarf að fara að bta úr einhverju. En já nú sjáið þig
hvernig þessu er komið hjá mér.
|
Hefur þú:
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
( ) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær
ekki ( ) verið
handtekin/n
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða .þykir rosalega vænt um e-h akkurat
núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
( ) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
( ) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
( ) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum
gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera
ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( ) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt
um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n
í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti |
Vá merkilegt, maður hefur áorkað ýmislegt, þetta dansdæmi samt
alveg orðið útundan þarf að bæta úr því.
Kveðja í bili
Ellý sem þjáist af ofnæmi en elskar rigninguna

»
10.05.2007 21:57:55 / elly
Já ég og minn þjóðarrembingur erum í fýlu núna. Eiríkur og hans
rauði makki átti auðvitað að komast áfram og það gott betur 
Ég ætla í mótmælaskyni að horfa ekki á keppnina á
laugardaginn huhh. Fer bara á kosningarskrifstofur og ríf
kjaft.
Já það væri sniðugt, nú fékk ég góða hugmynd, ég rölti á milli
kosningaskrifstofa og segist kjósa þann flokk sem lofar mér því að
vinna ötullega að því að láta Ísland vinna júróvisíon, sama hvað
þeir þurfi að gera. ÉG HEIMTA JÚRÓVISÍON Á ÍSLAND!!!
En já það var bara þetta sem ég þurfti að koma frá mér í þetta
skiptið og líka segja að ég er aftur komin með harðsperrur, í alla
hina vöðvana sem ég hélt að ég væri búin að henda í einhverju
tiltektarbrjálæðinu.
Heilsingur í bili
Ellý
»
08.05.2007 16:38:30 / elly
ÁI JÁ Ég er að farast úr harðsperrum. Sem þýðir jú eitt gott að
það eru vöðvar þarna innundir spikinu einhvers staðar.
En ég er í þvílíku átaki, sá fram á að með þessu
áframhaldi drepst ég áður en ég þarf að fara að hafa áhyggjur af
því að vera miðaldra. Og það mun þurfa sennilega að taka fjöldagröf
(þ.e fjölda grafa til að koma mér fyrir).
En já ég semsagt er farin að brúka Herbalifeið af viti og stunda
líkamsrækt. Svona í friðhelgi heimilisins til að byrja með en ég
keypti mér Boot Camp bókina til að styðjast við. Og fer eftir
æfingaprógramminu þar, sem er mjög gott því þar er líst á mjög
fávitavænann hátt hvaða æfingar maður á að gera hve oft og lengi og
þær útskýrðar í þaula. Semsagt ég hef fengið harðsperrur af öllu
þessu blaðsíðufletti hehe nei nei bara grín ég var voða dugleg í
gær og ælta mér að vera það næstu 15 vikurnar. og svo í 12 vikna
hollum alveg uppfrá því, án þessa að láta líða daga á milli
Þetta er alla vega stefnan í dag.
Já mitt markmið er "ein gröf skal nægja og það eftir
miðaldursaldurinn" Gott markmið ekki satt.
Annars er eitt og annað að frétta. Margrét Rós varð tveggja ára
4. maí, kötturinn týndist sama dag (já ég týndi aftur ketti)
kötturinn fannst svo aftur í gær sem er mjög gott, mikil framför
frá síðasta ketti. En nú ætla ég að skipta á henni dóttur minni og
fara út í góða veðrið.
Heilsingur í bili Ellý
»
29.04.2007 17:51:04 / elly
Jamm, nú eru kosningar framundan, voða spennandi fyrir fólk eins
og mig sem hefur gaman að pæla í stjórnmálum, og þó aðallega
stjórnmálaflokkum og enn helst stjórnmálafólki.
Einn góðann dag í liðinni viku kom Ormur með blað inn um
bréfalúguna (hehe já það eru ekki allir þess heiðurs aðnjótandi að
fá póstinn sinn með Ormi.) En þessi tiltekni pappír var auglýsing
frá Vinstri Grænum.
Það er kannski ekki í frásögur færandi að maður fái
svoleiðispóst þessa dagana en Magga samstarfari sem er mun gleggri
en ég rak augun í það að þessir vinstri grænu hér í Norðvestur
kjördæmi eru með eindæmum frjósamir. Já 18 manns voru á listanum og
áttu samanlagt (nei þau lögðu sig ekki saman og eignuðust börn
heldur bara eiga þessi börn með sínum mökum) 50 stykki.
Mér finnst þetta þónokkuð. En svo fattaði ég ástæðuna,
þeir eru ekki mjög skarpir hjá Vinstri grænum greyin og hafa
eitthvað misskilið hvernig þeir áttu að skapa sér fylgi. Þeir hafa
ákveðið að búa til sitt fylgi sjálfir. Það gengur hægt kannski en
skilar sér vonandi á endanum. Já og útskýrir afhverju þeir fara
stækkandi með hverju árinu, þeim fjölgar sennilega alltaf þeim VG
afkvæmum sem hafa kosningarrétt.
Annars fer að líða að því að ég sé búin að ákveða hvað ég ætla
að kjósa. Var nokkuð viss, fyrir helgi, vissari í gær og enn
vissari í dag. Svo þetta fer allt að koma.
Reyndar finnst mér þetta hundleiðinlegt með kosningarnar og
Júróvisíon .Jú maður hafði 2 ástæður til að detta í það í maí,
annars vegar júró og hins vegar kosningar en neinei auðvitað þurfti
að klína þessu öllu á einn og sama daginn. Bévítans svik og
pretti.
Jebb ekki meira í bili, nú ætla ég að skella mér í bað eftir að
hafa verið ansi dugleg að taka á smá lyftingum í bílskúrnum, varð
bara að blogga í millitíðinni. Hafið það gott kæru lesendur og
aðrar endur.
Kveðja
Ellý
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|